Alfreð Finnbogason, framherji Augsburg, er leikmaður 17. umferðarinnar í þýsku Bundesligunni í knattspyrnu hjá þýska fótboltablaðinu Kicker og hann er að sjálfsögðu í liði vikunnar.
Alfreð gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í ótrúlegu jafntefli Augsburg gegn Freiburg á laugardaginn en Alfreð skoraði tvö skallamörk í uppbótartímanum og tryggði sínum mönnum annað stigið.
Alfreð er í liði vikunnar hjá Kicker í fjórða sinn á tímabilinu en hann hefur skorað 11 mörk í deildinni og er þriðji markahæstur á eftir Robert Lewandwski, Bayern München, sem hefur skorað 15 mörk og Pierre-Emerick Aubameyang hefur skorað 13 mörk fyrir Dortmund.