Franski fótboltamaðurinn Antoine Griezmann staðfesti á dögunum að hann verður áfram í herbúðum Atlético Madrid en það gerði hann í heimildamynd sem ber nafnið La Decision, eða ákvörðunin, sem sýnd var í fyrradag og var framleidd sérstaklega fyrir ákvörðun sóknarmannsins.
Nú hefur félagið staðfest að sóknarmaðurinn knái hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2023. Samkvæmt frengum erlendis er talið að honum hafi verið boðin væn fúlga fyrir að vera áfram sem og loforð frá félaginu um að styrkja leikmannahópinn töluvert í sumar.
Griezmann skoraði í fyrsta leik Frakka á heimsmeistaramótinu í Rússlandi á dögunum er hann gerði fyrra markið í 2:1-sigri á Ástralíu.