Knattspyrnumaðurinn Gareth Bale mun ekki yfirgefa Real Madríd nema að annað félag sé reiðubúið að borga honum nálægt þeim 600.000 evrum sem hann fær í vikulaun hjá Real Madríd.
Bale er á sannkölluðum ofurlaunum því hann fær rúmlega 85 og hálfa milljón króna í vikulaun hjá Real Madríd. Rennur núverandi samningur hans við Real ekki út fyrr en árið 2022. Honum liggur því lítið á að yfirgefa félagið þótt Zinedine Zidane, knattspyrnustjóri Real, vilji losna við hann.
Sky Sports greinir frá því í dag að Bale sætti sig ekki við annað en að verða einn allra launahæsti leikmaður heims, muni hann yfirgefa Real.