Alba Silva, eiginkona knattspyrnumarkvarðarins Sergio Rico, setti inn hjartnæma færslu á samfélagsmiðilinn Instagram í morgun.
Rico, sem er 29 ára gamall, er samningsbundinn París SG í Frakklandi en hann féll af hestbaki á Spáni um síðustu helgi og liggur nú þungt haldinn á gjörgæslu þar í landi.
Rico hlaut þungt höfuðhögg við fallið en hann gekk til liðs við PSG árið 2020 og hefur verið varamarkvörður liðsins síðan.
„Ekki skilja mig eina eftir því ég veit ekki hvort eða hvernig ég á að lifa án þín,“ skrifaði Silva í færslu sinni á Instagram.
„Við verðum alltaf til staðar fyrir þig ástin mín og við elskum þig,“ bætti Silva við.