Birkir á skotskónum og á leið í umspil

Birkir Bjarnason skoraði í dag
Birkir Bjarnason skoraði í dag Ljósmynd/Brescia

Leikjahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi, Birkir Bjarnason, skoraði fyrsta mark Brescia sem tók á móti Lecco í ítölsku B-deildinni í dag. Brescia tryggði sér sæti í umspili um sæti í efstu deild að ári með sigrinum.

Brescia tryggði sér 8. sæti deildarinnar þegar ein umferð er eftir og fer í umspil um sæti í efstu deild. Brescia hafði gert þrjú jafntefli í röð fyrir leikinn í dag en Birkir kom sínum mönnum á bragðið á 12. mínútu en hann lék allan leikinn.

Brescia mætir Catanzaro í umspilinu en Bjarki Steinn Bjarkason og Mikael Egill Ellertsson eiga enn möguleika á að fara beint upp með Venezia fyrir lokaumferðina sem fram fer næstu helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert