Casemiro skilinn eftir heima

Casemiro verður ekki með Brasilíu í sumar.
Casemiro verður ekki með Brasilíu í sumar. AFP/Oli Scarff

Brasilíska knattspyrnusambandið birti fyrr í dag 23 manna hóp karlalandsliðsins fyrir Copa America, Ameríkubikarinn, í sumar. 

Mótið fer fram í Bandaríkjunum frá 20. júní til 14. júlí. 

Dorival Júnior þjálfari skildi eftir nokkrar stjörnur utan hóps. Casemiro leikmaður Manchester United, Richarlison, leikmaður Tottenham og Gabriel Jesus leikmaður Arsenal eru meðal þeirra.

Hafa þeir allir verið lykilmenn undanfarin ár. 

Þá er Neymar ekki með vegna meiðsla. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert