Helga María toppaði sig á afmælisdaginn

Helga María Vilhjálmsdóttir.
Helga María Vilhjálmsdóttir. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

Helga María Vilhjálmsdóttir náði sínum besta árangri í risasvigi á móti í Hemsedal í Noregi í morgun. Það sem meira er, hún fagnar 22 ára afmæli sínu í dag.

Helga María hafnaði í 8. sæti í greininni, en tími hennar var 1:11,39 mínútur og var hún 1,17 mínútu frá sigurvegaranum. Helga hlaut fyrir það 33,68 FIS-punkta, sem er hennar besti árangur í greininni. Andrea Björk Birkisdóttir náði einnig sínum besta áragnri, hafnaði í 55. sæti á tímanum 1:15,31 mínútu með 93,98 punkta og Harpa María Friðgeirsdóttir var 61. á tímanum 1:17,13 mínútum.

Á dögunum náði Helga María svo sínum besta árangri á svigi í vetur, þegar hún fékk 36,32 FIS-punkta og daginn eftir 35,02 punkta, og er hún því heldur betur að klára tímabilið vel í vetur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert