Atli Hilmarsson mun taka við sem þjálfari Akureyrar Handboltafélags af Heimi Erni Árnasyni og stýra liðinu út keppnistímabilið. Heimir mun í stað þess að þjálfa liðið leika með því út tímabilið.
Hannes Karlsson, formaður stjórnar Akureyrar Handboltafélags, staðfesti það við mbl.is að sennilega yrði endanlega gengið frá ráðningu Atla í dag. Landsliðsmaðurinn Sverre Jakobsson, sem verið hefur spilandi aðstoðarþjálfari Heimis, verður áfram í því hlutverki hjá Atla.
Atli stýrði Akureyrarliðinu um nokkurra ára skeið með góðum árangri. Meðal annars varð Akureyri deildarmeistari vorið 2011 undir hans stjórn og tapaði í framhaldinu fyrir FH í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn. Einnig komst Akureyrarliðið í úrslit bikarkeppninnar undir stjórn Atla. Hann þekkir því vel til í handboltanum nyrðra en auk þess að þjálfara Akureyri þá stýrði Atli KA um margra ára skeið með góðum árangri.
Akureyri hefur unnið þrjá af fyrstu átta leikjum sínum í deildinni og er í 7. sæti af 10 liðum með 6 stig.