Afturelding og Valur áttust við í toppslag í 9. umferð Olís-deildar karla í handbolta í Mosfellsbæ í kvöld þar sem Afturelding hafði betur 25:23. Afturelding styrkti þar með stöðu sína á toppi deildarinnar en um áttunda sigur liðsins í röð var að ræða.
Fyrir leikinn er Afturelding með 14 stig á toppi deildarinnar, sex stigum á undan Val sem er í 2. sæti. Valur hafði unnið fimm leiki í röð þegar kom að leiknum í kvöld.
Valur hafði þriggja marka forskot 13:10 að loknum fyrri hálfleik. Valsmenn skoruðu fyrstu tvö mörkin í síðari hálfleik en þá tóku Mosfellingar við sér. Leikurinn var jafn á lokakaflanum en Mosfellingum tókst að skora síðustu tvö mörkin. Kristinn Bjarkason innsiglaði sigurinn með marki á síðustu sekúndunum og hafði auk þess náð andstæðingi af leikvelli í síðustu sókninni.
Árni Bragi Eyjólfsson var markahæstur hjá Aftureldingu með 10 mörk og Elvar Ásgeirsson gerði 7. Sölvi Ólafsson stóð í marki Aftureldingar í síðari hálfleik þegar leikurinn snérist við og varði 7 skot.
Hlynur Morthens varði 14 skot í fyrri hálfleik í marki Vals en kólnaði í síðari hálfleik. Vignir Stefánsson skoraði 5 fyrir Val og var markahæstur.