Nú í morgun var dregið í 32-liða úrslit EHF-bikarkeppninnar í handknattleik, en enn á eftir að koma í ljós hvort FH eða St. Pétursborg fara áfram eftir að Rússarnir kærðu viðureignina við FH í gær.
Það var engu að síður dregið og FH eða St. Pétursborg mætir Tatran Presov frá Slóvakíu í þessari 3. umferð keppninnar.
St. Pétursborg kærði framkvæmd seinni leiksins við FH vegna mistaka finnsks eftirlitsmanns EHF. Sá taldi að grípa ætti til 2x5 mínútna framlengingar yrði staðan í einvíginu jöfn að loknum tveimur leikjum, en í raun átti að grípa til vítakeppni. FH tryggði sér sigur í framlengingunni og því kom aldrei til neinnar vítakeppni.
FH hefur frest til klukkan fimm í dag til að skila greinargerð um málið og reiknað er með niðurstöðu í fyrramálið.