Lofa betri leik gegn Íslendingum

Leikmenn Nígeríu.
Leikmenn Nígeríu. AFP

John Ogu leikmaður nígeríska landsliðsins lofar betri frammistöðu gegn Íslendingum heldur en í leiknum gegn Króötum á HM í knattspyrnu í Rússlandi.

Nígería tapaði fyrir Króötum 2:0  í Kalingrad á laugardaginn en Ísland og Nígería mætast í Volgograd á föstudaginn. Kvöldið áður eigast Króatar og Argentínumenn við í sama riðli og fari svo að Króatía vinni þann leik og Nígería tapi fyrir Íslandi þá eru Nígeríumenn úr leik á HM.

„Við eigum mjög þýðingarmikinn leik á móti Íslendingum á föstudaginn og við vinnum hart að því að sýna betri leik gegn þeim heldur en Króötum,“ segir Ogu sem leikur með liði Hapoel Be'er Sheva í Ísrael en hann á baki 20 leiki með nígeríska landsliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert