Knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo er á meðal varamanna hjá portúgalska landsliðinu sem mætir Sviss í 16-liða úrslitum HM í Katar í Lusail.
Ronaldo hefur byrjað alla þrjá leiki portúgalska liðsins á heimsmeistaramótinu til þessa og skorað í þeim eitt mark.
Eftir að Portúgal tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum gerði portúgalski fjölmiðillinn A Bola skoðanakönnun á vef sínum þar sem spurt var hvort Ronaldo ætti að vera í byrjunarliði gegn Sviss í 16-liða úrslitunum.
70 prósent vildu sjá Ronaldo á bekknum á meðan 30 prósent vildu sjá Ronaldo í byrjunarliðinu.
Leikur Portúgals og Sviss hefst klukkan 19 og verður honum lýst beint á mbl.is.