Logi Gunnarsson mun leika sinn síðasta A-landsleik gegn Tékkum í undankeppni HM í körfuknattleik á sunnudaginn en hann spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir tæpum átján árum í sigri á Norðmönnum í Keflavík.
Mbl.is spurði Loga hvaða landsleikir væru eftirminnilegastir. „Margir leikir gegn stórum þjóðum eru eftirminnilegir. Við fengum til dæmis tækifæri til að spila nokkra leiki við Litháa sem eru ein fremsta körfuboltaþjóð í heimi. Við fórum til Kína og spiluðum á móti Kínverjum með Yao Ming innanborðs sem þá var á fullu með Houston Rockets. Það var mjög sérstakt.
Auk þess standa Eurobasket-mótin upp úr og þá frekar Berlín 2015. Þá vorum við á stóra sviðinu í fyrsta skipti og mættum Þjóðverjum í upphafsleik með Dirk Nowitzki. Það var ábyggilega einn af toppunum hjá henni. Á því móti fórum við í framlengingu á móti Tyrkjum sem er stórþjóð og hafði spilað til úrslita á HM. Persónulega átti ég þá góðan leik,“ sagði Logi Gunnarsson við mbl.is.
Logi er á 37. aldursári og honum fannst vel við hæfi að ljúka landsliðsferlinum á heimavelli. „Eftir EM í Helsinki fór ég að skoða dagsetningarnar varðandi næstu landsleiki. Það er svolítið sérstakt að fá tvo leiki í röð í Laugardalshöllinni. Það hefur sjaldan gerst í þessum undankeppnum. Mér fannst það passa betur en að hætta strax eftir EM og hef velt ákvörðuninni fyrir mér í nokkurn tíma. Mig langaði til að fá góða leiki hér heima.“
Ísland og Finnland mætast í Laugardalshöllinni í kvöld klukkan 19.45 en leikur Íslands og Tékklands verður á sama stað klukkan 16.00 á sunnudaginn.