Forráðamenn NBA-deildarinnar í körfuknattleik hafa gripið í taumana eftir að upp úr sauð í leik Los Angeles Lakers og Houston Rockets aðfaranótt sunnudags.
Brandon Ingram, leikmaður Lakers, braut á James Harden, leikmanni Rockets, með þeim afleiðingum að allt sauð upp úr í fjórða leikhluta.Leikmenn létu hnefana tala inn á vellinum með þeim afleiðingum að Ingram, Rajon Rondo og Chris Paul voru allir reknir út úr húsi.
Þremenningarnir hafa nú allir verið úrskurðaðir í keppnisbönn og þurfa að greiða sektir. Ingram fékk fjögurra leikja bann og Rondo liðsfélagi hans hjá Lakers fékk þriggja leikja bann. Paul, leikmaður Rockets, fékk svo tveggja leikja bann, en hann hefur sagt að upphafið á átökunum megi rekja til þess að Rondo hafi hrækt framan í sig.
Leikurinn fór 124:115 fyrir Rockets, en um var að ræða fyrsta heimaleik LeBron James í treyju Lakers.