Írski bardagakappinn Conor McGregor hafði betur gegn Donald „kúreka“ Cerrone þegar hann sneri aftur í búrið í Ultimate Fighting Championship (UFC) í gærkvöld, 15 mánuðum eftir að hafa tapað titilbardaga fyrir Khabib Nurmagomedov.
Bardaginn fór fram í T-Mobile Arena í Las Vegas og það tók Conor aðeins 40 sekúndur að sigra kúrekann, en eftir stanslaus högg frá Conor í upphafi bardagans tókst honum að rota Cerrone. Dómarinn greip inn í og stöðvaði bardagann og dæmdi Conor sigur með tæknilegu rothöggi.
„Ég komst í sögubækurnar í kvöld. Ég setti met. Ég er fyrsti bardagakappinn í sögu UFC sem sigrar með rothöggi í fjaðurvigt, léttivigt og nú í veltivigt - ég er mjög stolur af því,“ sagði McGregor eftir sigurinn, en Cerrone er einn besti veltivigtamaður sögunnar á meðan McGregor var að berjast í þyngdaflokknum í fyrsta skipti
Það hefur gengið á ýmsu hjá kappanum undanfarin misseri. Í nóvember var hann fundinn sekur um að hafa lamið mann á bar í Dublin algjörlega að tilefnislausu. Fyrir það þurfti hann að greiða 1.000 evrur í sekt.
Í mars lýsti hann því yfir að hann væri hættur keppni og myndi leggja hanskana á hilluna en nú er hann hins vegar snúinn aftur, og gott betur en það.