Best um helgina

Besta íþróttafólkið fyrri keppnishelgi Reykjavíkurleikanna fékk viðurkenningu í veislu í …
Besta íþróttafólkið fyrri keppnishelgi Reykjavíkurleikanna fékk viðurkenningu í veislu í Laugardalshöll. ÍBR/Hrefna Hlín Sveinbjörnsdóttir

Það er búið að vera mikið um að vera á 13. Reykjavíkurleikunum um helgina en leikarnir hófust á fimmtudag og standa yfir til 2. febrúar. Eitt heimsmet var sett um helgina, fjölmörg Íslandsmet, mótsmet og önnur glæsileg tilþrif.

Til að halda upp á góðan árangur fyrri keppnishelgar leikanna var slegið upp veislu í Laugardalshöll í gærkvöldi með tónlist og skemmtiatriðum. Í veislunni fékk besta íþróttafólkið í hverri grein viðurkenningar.

Keppni hefst aftur á fimmtudag en þá fer keppni í klifri og keilu af stað. Tólf greinar eru á dagskrá leikanna seinni keppnishelgina og má finna upplýsingar um þær hér á rig.is.

Íþróttafólkið sem var stigahæst eða valið best í sinni grein fyrri keppnishelgi Reykjavíkurleikanna 2020:

Badminton
Fathurrahman Fauzi, Indónesía
Rachel Sugden, Skotland 

Borðtennis
Ellert Georgsson, Ísland
Nevene Tasic, Serbía 

Dans
Artem Semerenko, Kirghistan
Valeriya Kachalki, Kirghistan 

Enduro-hjólreiðar
Gestur Jónsson, Ísland
Þórdís Björk Georgsdóttir, Ísland 

Júdó
Zaza Simonishvili, Ísland
Ingunn Sigurðardóttir, Ísland 

Ólympískar lyftingar
Tim Kring, Danmörk
Mille Sögaard, Danmörk 

Karate
Joby Wilson, England
Sonia Ventura Garcia, Spánn 

Kraftlyftingar
Kimberly Walford, Bandarísku-Jómfrúareyjar
Viktor Samúelsson, Ísland 

Listskautar
Nikolaj Mølgaard Pedersen, Danmörk
Marianne Stålen, Noregur 

Sund
Anton Sveinn McKee, Ísland
Mie Nielsen, Danmörk

Reykjavíkurleikarnir á mbl.is

Það var líf og fjör í Reykjavíkurleikaveislunni í Laugardalshöll í …
Það var líf og fjör í Reykjavíkurleikaveislunni í Laugardalshöll í gærkvöldi. ÍBR/Hrefna Hlín Sveinbjörnsdóttir
Skemmtiatriði í Reykjavíkurleikaveislu í Laugardalshöll.
Skemmtiatriði í Reykjavíkurleikaveislu í Laugardalshöll. ÍBR/Hrefna Hlín Sveinbjörnsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert