Pakistanski fjárfestirinn Alshair Fiyaz hefur keypt hlut í dönsku stórverslununum Magasin og Illum. Mun hann eiga helmingshlut í fimm af sex fasteignum verslananna ásamt Straumi-Burðarási. Gert er ráð fyrir að nýtt hlutafé verði sett inn í rekstarfélög verslananna.
Tilkynnt var í morgun, að fasteignafélagið Landic Property hefði selt Straumi-Burðarási og fleiri fjárfestum Magasin og Illum fasteignirnar. Straumur-Burðarás hefur átt rekstrarfélag verslananna en þau komust í eigu íslenska bankans þegar hann yfirtók 75% hlut Baugs í félaginu M-Holding í mars.
Um er að ræða sex fasteignir í Danmörku. Magasin rekur verslanir við Kongens Nytorv í Kaupmannahöfn og verslanir í Lyngby, Árósum og Óðinsvéum. Illum er á horni Østergade og Købmagergade í Kaupmannahöfn. Magasin á einnig vöruhús á Avedøre Holme.
Fram kemur á viðskiptavef Jyllands-Posten, að nýstofnað félag, Solstra Holding A/S, kaupi fimm af fasteignunum sex og rekstrarfélag verslananna. Solstra er í eigu Straums og Fiyaz sem eiga 50% hlut hvor.
Solstra hefur einnig kauprétt á 49,9% hlut í fyrirtækinu, sem rekur flaggskip Magasinverslananna við Kongens Nytorv.
Verðugur arftaki Íslendinganna
Fiyaz hefur á undanförnum þremur árum fjárfest fyrir yfir 5 milljarða dala í verslunarrekstri í Bretlandi og víðar í Evrópu og í Bandaríkjunum. Á fréttavef Berlingske Tidende er Fiyaz sagður verðugur arftaki íslensku glaumgosafjárfestanna, sem reyndu að leggja undir sig verslunarrekstur í Danmörku.
Berlingske segir, að Fiyaz sé í hinu evrópska þotuliði og þeytist á milli Parísar, Lundúna og St. Tropez. Faðir Fiyaz auðgaðist á viðskiptum á sínum tíma en bæði Alshair og Javed bróðir hans hafa haslað sér völl í viðskiptalifinu á eigin forsendum.
Alshair Fiyaz er sagður áhugasamur pololeikari og á pololið ásamt bróður sínum.