Leikfangaframleiðandinn Mattel á í vandræðum: Barbie hefur ekki verið að standa sig sem skyldi.
Sala á dúkkunni hefur minnkað um 14% á fyrsta ársfjórðungi og er þetta annar ársfjórðungurinn í röð þar sem salan dregst saman um yfir 10%.
Mattel er ekki eini leikfangaframleiðandinn sem er í vandræðum. Gríðarleg samkeppni er orðin á leikfangamarkaði og mörg fyrirtæki hafa þurft að draga verulega saman seglin.
Mattel tapaði 11,2 milljónum dala á síðasta ársfjórðungi vegna minni sölu. Fyrirtækið hefur gripið til ýmissa hagræðingaraðgerða m.a. sagt upp 1,5% af starfsliði sínu sem telur um 28 þúsund manns.
Aðrar vörur Mattel hafa bætt fyrir lélega sölu á Barbie að einhverju leyti. Lestin Tómas og allt sem henni fylgir selst vel og einnig varningur tengdur myndinni Frozen.
En menn hjá Mattel eru þó bjartsýnir. Þeir segja sölu á stórum mörkuðum, s.s. í Kína og Rússlandi vera að aukast.
Og það er ekki fræðilegur möguleiki að þeir gefi Barbie sína upp á bátinn þó að hún sé ekki að hala inn peningunum þessa dagana. Í ár mun Barbie breyta um stíl, vera sett í nýjar umbúðir og ný auglýsingaherferð er væntanleg.
Tíska verður í fyrirrúmi og segir forstjóri Mattel að „stúlkur geti hannað og prentað út þeirra eigin kjóla fyrir Barbie með Fashion Design Maker.“