Ýmist varð hækkun eða lækkun á mörkuðum í Asíu eftir viðskipti dagsins. Páskahátíðin hafði augljós áhrif og lækkun varð á flestum mörkuðum.
Lítið breyttist í kauphöllinni í Tókýó, lækkun varð í Seoul og nam hún 0,25%. Hækkun varð í Taipei, 0,17%, í Shanghai nam lækkunin 0,44% en í Singapore hækkaði vísitalan um 0.11%.
Kauphallirnar í Hong Kong, Sydney og Wellington voru lokaðar í dag, annan í páskum.