Álagningarskrá hefur verið opnuð á vef ríkisskattstjóra, en þar er hægt að sjá niðurstöður álagningar. Á morgun verður skráin formlega lögð fram á skrifstofum embættisins, en kærufrestur mun miðast við þá dagsetningu.
Hægt er að nálgast álagningarskrár á vefnum rsk.is eða skattur.is
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segir í samtali við mbl.is að á morgun verði einnig birtir listar yfir hæstu gjaldendur, eins og hefur tíðkast. „Þetta verður birt með tilhlýðilegum hætti á morgun,“ segir hann, en embættið hefur síðustu ár iðkað það að birta álagningu hvers og eins á vefnum degi fyrr til að dreifa álagi.
Skúli segir að hægt sé að mæta á skrifstofu embættisins og fá upplýsingar á morgun um álagningu, en hann bendir einnig á bækling sem embættið hefur gefið út með grunnupplýsingum um álagningu.