Hlutabréf Marels snarhækkuðu um 4,41% í verði í dag í 132 milljóna króna viðskiptum. Eins og kunnugt er birti félagið afkomu sína fyrir annan fjórðung ársins eftir lokun markaða í gær.
Afkoma félagsins á fjórðunginum versnaði á milli ára. Hagnaður félagsins nam 0,8 milljónum evra samanborið við 5,2 milljóna evra hagnað á sama tímabili í fyrra. Haft var eftir Árna Oddi Þórðarsyni, forstjóra Marels, í afkomutilkynningunni að rekstrarniðurstaðan væri ekki viðunandi. Hann sagði þó að verkefnastaða félagsins hefði batnað og að hagræðing í rekstrinum væri samkvæmt áætlun.
IFS greining sagði uppgjörið seint geta talist gott.
Athygli vekur að hlutabréf Össurar hækkuðu um rúm sex prósent í verði í dag. Lítil velta, eða rúmar þrjátíu milljónir, var hins vegar á bak við viðskiptin. Félagið birti uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung klukkan tvö í dag, en hagnaður þess jókst um 106% milli ára.
Frétt mbl.is: Rekstrarniðurstaða Marels óviðunandi