365 ræður þrjá framkvæmdastjóra

Sigrún L. Sigurjónsdóttir, Jóhanna Margrét Gísladóttir og Gunnar Ingvi Þórisson.
Sigrún L. Sigurjónsdóttir, Jóhanna Margrét Gísladóttir og Gunnar Ingvi Þórisson.

Þrír starfsmenn 365 voru í dag ráðnir sem framkvæmdastjórar hjá fyrirtækinu. Gunnar Ingvi Þórisson verður framkvæmdastjóri fjarskipta- og tæknisviðs, Jóhanna Margrét Gísladóttir verður framkvæmdastjóri sjónvarpssviðs og Sigrún L. Sigurjónsdóttir verður framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Öll hafa þau starfað hjá 365 um lengri eða skemmri tíma.

Haft er eftir Sævari Frey Þráinssyni, forstjóra hjá 365, að í raun sé nú bara verið að ráða í lausar stöður. Hann segist sérstaklega ánægður með niðurstöðuna vegna þess að með ráðningunum fjölgi enn konum í hópi stjórnenda hjá 365. Framundan er stefnumótunarvinna sem eigi að ljúka í september.

Sigrún L. Sigurjónsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt og útskrifaðist með MBA-próf frá Háskólanum í Reykjavík 2009. Sigrún hefur starfað hjá 365 frá ársbyrjun 2004, byrjaði sem rekstrarstjóri hjá Frétt ehf. og forstöðumaður innheimtusviðs hjá 365 hf. (áður Dagsbrún). Hún var forstöðumaður fjárstýringar og greiðsluþjónustu hjá 365 og svo fjármálastjóri þar til um liðin áramót er hún tók við sölu- og þjónustusviði áskrifta hjá félaginu. Hún mun stýra því jafnhliða fjármálasviðinu enn um sinn. Sigrún er í sambúð með Valtý Birni Valtýssyni og á eitt barn.

Jóhanna Margrét Gísladóttir útskrifaðist með meistaragráðu í rekstrarverkfræði frá Duke-háskóla í Bandaríkjunum í maí síðastliðnum og er einnig með BSc í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Undanfarið hefur Jóhanna gegnt starfi rekstrarstjóra sjónvarpssviðs 365 en hún starfaði áður sem fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2 og verkefnastjóri á framleiðsludeild. Auk þess hefur Jóhanna unnið hjá Arion Banka og Straumi. Jóhanna er trúlofuð Ólafi Sigurgeirssyni, meistaranema í heilbrigðisverkfræði.

Gunnar Ingvi Þórisson hefur víðtæka reynslu af rekstri upplýsingatæknikerfa. Hann var einn af aðaleigendum Sensa ehf., sat í stjórn félagsins frá 2002 til 2007 og starfsmaður hjá Sensa til loka árs 2012. Á þeim tíma vann hann við ráðgjöf og þjónustu fyrir mörg af stærri fyrirtækjum á Íslandi, þar á meðal flest fjarskiptafyrirtæki landsins. Gunnar er með mikla reynslu í öryggismálum og tækni sem snýr að internetveitum og gagnaverum (Data Center). Gunnar vann á kjarnasviði Tæknivals frá 1997 til 2002, þar áður í forritaþróun hjá Hug 1995–1997. Gunnar er kvæntur Lindu Björk Bjarnadóttur og á með henni þrjú börn.

Sigrún L. Sigurjónsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs 365 miðla.
Sigrún L. Sigurjónsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs 365 miðla.
Jóhanna Margrét Gísladóttir framkvæmdastjóri sjónvarpssviðs 365 miðla.
Jóhanna Margrét Gísladóttir framkvæmdastjóri sjónvarpssviðs 365 miðla.
Gunnar Ingi Þórisson framkvæmdastjóri fjarskipta- og tæknisviðs.
Gunnar Ingi Þórisson framkvæmdastjóri fjarskipta- og tæknisviðs.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK