Launavísitala hækkaði um 0,4% í júlí frá fyrri mánuði og var 484,7 stig. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 5,9%, samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands.
Þá var vísitala kaupmáttar launa í júlí 117,8 stig og hækkaði um 0,6% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitalan jafnframt hækkað um 3,5%.