Endurfjármögnun Iceland Foods-smásölukeðjunnar er lokið en alls söfnuðust 950 milljónir punda í skuldabréfaútboði fyrirtækisins nýverið.
Forstjóri Iceland Foods og aðaleigandi, Malcolm Walker, og lykilstjórnendur þess keyptu 77% hlutafjár í Iceland Food árið 2012 af Landsbankanum og Kaupþingi. Í frétt Sunday Telegraph kemur fram að lánin sem tekin voru vegna kaupanna hafi nú verið greidd upp með endurfjármögnuninni.
Fjárfestingarbankinn Rothschild á að hafa veitt Iceland Foods ráðgjöf við endurfjármögnunina og eru skuldabréf fyrirtækisins nú skráð í kauphöllina í Lúxemborg.
Baugur átti áður Iceland Foods en fyrirtækið endaði hjá Landsbankanum að mestu eftir hrun.