Samningar um smíði þriggja nýrra ísfisktogara fyrir HB Granda voru undirritaðir á föstudag. Samningarnir hljóða upp á 43.950.000 evrur eða um 6,8 milljarðar króna og er áætlað að fyrsta skipið verði afhent í maí 2016, næsta síðla árs 2016 og það þriðja vorið 2017.
Á vefsvæði HB Granda segir að nýju skipin muni leysa af hólmi þrjá togara sem nú eru í rekstri, þ.e. Ásbjörn RE, Otto N. Þorláksson RE og Sturlaug H. Böðvarsson AK. „Með nýju skipunum eykst hagkvæmni í rekstri, þau munu eyða minni olíu, aflameðferð og nýting verður betri, rekstraröryggi eykst og viðhaldskostnaður mun lækka,“ segir í fréttinni.
Það er skipasmíðastöðin Celiktrans Deniz Insaat Ltd. Sti., Tuzla, Tyrklandi sem mun annast smíði togaranna en fyrir er stöðin að smíða tvö uppsjávarskip fyrir HB Granda.