Hrein staða þjóðarbúsins gagnvart útlöndum við lok annars ársfjórðungs var neikvæð um 182 milljarða króna eða 10% af vergri landsframleiðslu ef frátaldar eru innlánsstofnanir í slitameðferð. Séu þær teknar með var staðan neikvæð um 7.483 milljarða króna eða 414% af landsframleiðslu samkvæmt tölum sem Seðlabanka Íslands.
„Talið er að slit innlánsstofnana í slitameðferð hafi neikvæð áhrif á hreinu stöðuna sem nemur 44% af vergri landsframleiðslu en önnur fyrirtæki sem unnið er að slitum á hafi jákvæð áhrif sem nemi 3% af vergri landsframleiðslu. Undirliggjandi erlend staða miðað við reiknað uppgjör innlánsstofnana í slitameðferð og fyrirtækja sem unnið er að slitum á er því metin neikvæð um 51% af vergri landsframleiðslu.“
Til samanburðar hafi undirliggjandi staða í lok fyrsta ársfjórðungs 2014 verið talin neikvæð um 54% af vergri landsframleiðslu. Þannig hafi undirliggjandi staðan batnað um 3% af landsframleiðslu á öðrum ársfjórðungi. Virðishækkun á erlendum verðbréfum innlendra aðila, einkum lífeyrissjóðanna, hafi vegið þar þyngst.