Ætla að verða tölvumenn og konur

Styrkirnir eru í formi tölvubúnaðar og þjálfunar kennara til forritunarkennslu …
Styrkirnir eru í formi tölvubúnaðar og þjálfunar kennara til forritunarkennslu fyrir nemendur. Sverrir Vilhelmsson

Styrkjum að andvirði fjórar milljónir króna verður úthlutað úr sjóðnum „Forritarar framtíðarinnar“ í annað sinn á miðvikudaginn. Styrkirnir eru í formi tölvubúnaðar og þjálfunar kennara til forritunarkennslu fyrir nemendur og skiptast að þessu sinni á milli fjögurra skóla: Smáraskóla, Kirkjubæjarskóla, Grunnskólans í Sandgerði og Grunnskóla Vestmannaeyja. Sjóðnum bárust alls 39 umsóknir í þessari úthlutun, flestar frá grunnskólum, eða 67%. 

Úthlutað alls átta milljónum króna

Sjóðurinn Forritarar framtíðarinnar hóf starfsemi sína í byrjun árs 2014 og er megin hlutverk sjóðsins að efla forritunar- og tæknimenntun í grunn- og framhaldsskólum landsins. Skólar og sveitarfélög geta sótt um styrki úr sjóðnum til að efla tæknikennslu og notkun á tækni í skólastarfi og fá til þess þjálfun og tækjabúnað, allt eftir þörfum hvers og eins.

Við erum mjög ánægð með þær viðtökur sem sjóðurinn hefur fengið og þann fjölda umsókna sem hafa borist. Við erum stolt af því að hafa náð að úthluta styrkjum að verðmæti 8 milljóna á fyrsta starfsári. Við höfum fengið til samstarfs við okkur rosalega flotta hollvini, bæði einkafyrirtæki sem og mennta- og menningarmálaráðuneytið sem sýnir okkur hvernig atvinnulífið og hið opinbera geta unnið saman og náð árangri,“ er haft eftir Guðmundi Tómasi Axelssyni, stjórnamanni í Forriturum framtíðarinnar, í yfirlýsingu.

Forritun í kennsluskrá grunnskólans

Við erum afar þakklát fyrir styrkinn úr sjóðnum Forritarar framtíðarinnar sem við fengum í febrúar. Við vildum í upphafi einbeita okkur að því að gefa kennurum innsýn í ævintýraheim forritunar. Áhuginn var mikill og námskeiðin frá Skema fyrir kennarana voru frábær. Að yfirfæra þá vitneskju yfir til nemenda er líka dýrmæt upplýsingagjöf,“ segir Soffía Vagnsdóttir, skólastjóri Grunnskólans í Bolungarvík. „Margir nemendur ætla að verða tölvumenn eða konur þegar þeir verða stórir. Við erum líka óendanlega þakklát fyrir þann tæknibúnað sem við fengum að gjöf og getum nú státað af frábærri aðstöðu hér í skólanum á sviði tölvubúnaðar. Við höfum haldið áfram kennslu á sviði forritunar og nú er búið að setja forritun formlega inn í tölvukennsluna hjá okkur. Áhugasamasti kennarinn er nú til dæmis í áframhaldandi námi í forritun,“ segir Soffía.

Að sjóðnum koma fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum. Þau leggja honum lið með því að leggja honum til fjármagn og tæknibúnað. Bakhjarlar og hollvinir sjóðsins eru Nýherji, Íslandsbanki, Landsbankinn, Reiknistofa bankanna, CCP, Cyan veflausnir, Össur og mennta- og menningarmálaráðuneytið.

Guðmundur Tómas Axelsson, stjórnarmaður í Forriturum framtíðarinnar.
Guðmundur Tómas Axelsson, stjórnarmaður í Forriturum framtíðarinnar. Mynd/Forritarar framtíðarinnar
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK