Seðlabankinn í Rússlandi tilkynnti í dag að stýrivextir bankans yrðu hækkaðir um 1,5 prósent eða úr átta prósentustigum í 9,5 prósent. Er þetta tilraun til að komu stöðugleika á gengi rúblunnar sem nú er í sögulegu lágmarki frá því að hún var tekin upp árið 1998.
Stýrivextirnir verða hækkaðir þann 5. nóvember. Áhrif viðskiptabanns Bandaríkjamanna og Evrópusambandsins sem sett var á í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu hefur haft töluverð áhrif á efnahag landsins auk þess sem lækkandi olíuverð hefur gert ástandið verra.
Verðbólgan í Rússlandi var töluvert há áður en viðskiptabannið var sett á en Rússar hafa haft áhyggjur af því að lækkandi rúbla muni auka enn á bólguna.
Stýrivextir í Rússlandi hafa á árunum 2003 til 2014 verið að meðaltali um 6,5 prósent en hæstir voru þeir 10,5 prósent í apríl 2009. Lægstir voru þeir 5 prósent í júní 2010.