Standard and Poor's varð í dag fyrst greiningarfyrirtækja til að lækkað lánshæfismat á Rússlandi niður í ruslflokkinn svonefnda. Moody's og Fitch höfðu fyrr í mánuðinum einnig lækkað lánshæfismat landsins og stendur Rússland einum flokki ofar ruslflokknum hjá þeim. Fyrirtækin gáfu einnig út að það kæmi til greina að lækka Rússland enn frekar.
Í greiningu Standard and Poor's segir að slæmar horfur séu í efnahagslífi Rússlands vegna lækkandi olíuverðs, refsiaðgerðir vegna deilunnar í Úkraínu og gengis rúblunnar. Veikar vonir séu um hagvöxt og reyndar reiknar fyrirtækið með 2,6% samdrætti.