Áætlað er að fyrirtæki sem tilheyra upplýsingatæknigeiranum séu um 200 talsins og velta þeirra ríflega 50 milljarðar á ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum iðnaðarins.
Ný stjórn SUT, Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja var kosin á aðalfundi félagsins nýverið. Stjórnina skipa þau Haukur Hannesson framkvæmdastjóri AGR sem er jafnframt formaður stjórnar, Finnur Oddsson forstjóri Nýherja, Heimir Fannar Gunnlaugsson framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi, Jóhann Jónsson forstöðumaður viðskiptaþróunar og reksturs Advania, Sigurður Stefánsson fjármálastjóri CCP, Ragnheiður H. Magnúsdóttir forstjóri Hugsmiðjunnar og Pétur Orri Sæmundsen forstjóri Kolibri.
Samtök upplýsingatæknifyrirtækja, SUT, starfa innan Samtaka iðnaðarins sem starfsgreinahópur á hugverkasviði. Meginmarkmið SUT er að vinna að brýnustu hagsmunarmálum íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja, segir í tilkynningu.