Þrjú dótturfélög Orkuveitu Reykjavíkur hyggjast fjárfesta fyrir tæpa níu milljarða króna á árinu 2015. Þetta er meðal þess sem kom fram á Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins í síðustu viku.
Umfangsmestu fjárfestingarnar eru lagning Hverahlíðarlagnar, fráveituframkvæmdir á Vesturlandi og endurnýjun Reykjaæða hitaveitunnar í Reykjavík.
Á þinginu kynntu þau Inga Dóra Hrólfsdóttir, Páll Erland og Erling Freyr Guðmundsson fjárfestingaáætlanir OR-Veitna, Orku náttúrunnar og Gagnaveitu Reykjavíkur. Þau eru framkvæmdastjórar þessara dótturfélaga Orkuveitu Reykjavíkur.
Stærsta einstaka verkefnið er lagning Hverahlíðalagnar á vegum ON. Það er þegar hafið og í því felst lagning gufulagna frá borholum við Hverahlíð á Hellisheiði að Hellisheiðarvirkjun. Mestur þungi framkvæmda er nú í ár en frágangi mun ljúka 2016. Um 2,5 milljarður renna til þess verkefnis. Fjárfesting alls er áætluð 3.877 mkr.
Í veiturekstrinum er uppbygging nýrrar fráveitu á Vesturlandi að fara af stað að nýju. Því verkefni var frestað í fjárhagserfiðleikunum eftir hrun en því á að ljúka fyrir árslok 2016. Um 650 milljónir renna til þess verkefnis í ár en næststærst er endurnýjun Reykjaæða, sem flytja hitaveituvatn til höfuðborgarinnar úr Mosfellsbæ. Endurnýjað verður sitt hvoru megin Elliðaánna nú í ár og mun það kosta hátt í 400 milljónir. Fjárfesting alls er áætluð 4.650 mkr.
jósleiðarakerfis í Reykjavík. Fram komu á útboðsþinginu áhugaverðar upplýsingar um útbreiðslu Ljósleiðara Gagnaveitunnar en áformað er að verja 400 milljónum króna til frekari útbreiðslu þess á árinu 2015.
Hér er hægt að sjá nánari upplýsingar um þessar fyrirhuguðu framkvæmdir