Safnarar hafa hugsað sér gott til glóðarinnar eftir að pakki af bláum Ópal var boðinn til sölu á Facebook fyrir 10 þúsund krónur í vikunni.
Nú eru átta óopnaðir pakkar af Ópal til viðbótar til sölu í Facebook-hópnum Brask og brall. Upphafsboðið er hvorki meira né minna en 15 þúsund krónur fyrir fjóra pakka en hægt er að bjóða fimm þúsund krónur í stakan pakka.
Innihaldið er þó löngu útrunnið en annað fjögurra pakka settið rann úr þann 17. október 2006 en hitt þann 9. júní sama ár.
Framleiðslu á bláum Ópal var hætt í september árið 2005 en nammið á sér þó enn dyggan aðdáendahóp. Líkt og mbl greindi fá á sínum tíma var framleiðslunni hætt þar sem hætt var að framleiða mikilvægasta bragðefnið. Þrátt fyrir ítarlega eftirgrennslan og rannsóknir sælgætismeistara Nóa Síríus fannst hliðstætt efni ekki hjá öðrum framleiðendum.
Blár Ópal hafði þá verið framleiddur með sömu aðferðum í rúma hálfa öld og sagði markaðsstjóri Nóa Síríus að óviðeigandi væri að bjóða slíka vöru með alveg nýju bragði.
Frétt mbl.is: Blár ópal ekki lengur til