Ármann og Margit til Virðingar

Ármann Þorvaldsson
Ármann Þorvaldsson

Ármann Þorvaldsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Virðingar.  Ármann mun í upphafi einkum einbeita sér að uppbyggingu og öflun verkefna á sviði fyrirtækjaráðgjafar en þar hefur mikill árangur náðst síðustu misseri og verkefnastaða félagsins er afar góð. Hann mun jafnframt koma að enn frekari uppbyggingu félagsins og tekjuöflun á öllum sviðum. 

Í tilkynningu frá Virðingu segir að Ármann hafi áralanga reynslu á sviði fjármálamarkaða. Hann útskrifaðist með MBA frá Boston University árið 1994 og er með BA gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands. Ármann var framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Kaupþings frá árinu 1997 til ársins 2005 og framkvæmdastjóri Kaupþings Singer & Friedlander í Bretlandi frá 2005 til ársins 2008. Hann hefur á undanförnum árum starfað sem framkvæmdastjóri hjá fasteignalánafélaginu Ortus Secured Finance í London, en verður nú stjórnarformaður þess félags.

Margit framkvæmdastjóri framtakssjóða

Margit Robertet hefur jafnframt verið ráðin framkvæmdastjóri framtakssjóða Virðingar. Þar eru reknir tveir framtakssjóðir (e. Private equity), Auður I og Edda. Auður I á eignarhluti í Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni, Já.is, 365, Íslenska gámafélaginu, Yggdrasil og Gagnavörslunni. Edda hefur fjárfest í þremur félögum; Securitas, Domino´s pizza og Íslandshótelum.

Margit útskrifaðist með MBA frá Rotterdam School of Management árið 1993 og er með BS gráðu í viðskiptum frá University of Colorado. Margit hefur starfað hjá Virðingu og áður Auði Capital frá árinu 2007. Hjá Auði Capital starfaði hún sem framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar og hefur frá byrjun árs 2014 verið starfandi á framtakssjóðasviði. Á árunum 2005 til 2007 var hún framkvæmdastjóri lánasviðs Straums fjárfestingabanka. Á árunum 1993 til ársins 2005 starfaði hún hjá Credit Suisse First Boston í París og hjá Barclays í London. Á þeim tíma var hún bæði starfandi á sviði fyrirtækjaráðgjafar sem og markaðsviðskipta.

Stefna á hæfasta starfsfólkið

Í tilkynningu er haft eftir Hannesi Frímanni Hrólfssyni, forstjóra Virðingar, að ráðningarnar séu afar ánægjulegt skref. „Virðing stefnir alltaf að því að vera með hæfasta starfsfólkið á fjármálamarkaði í sínum röðum og Ármann og Margit fylla svo sannarlega þann flokk. Það eru spennandi tímar framundan á þessum kröfuharða markaði og ráðning þessara tveggja afar hæfu einstaklinga er þáttur í þeirri uppbyggingu sem framundan er hjá Virðingu,“ er haft eftir honum

Margit Robertet
Margit Robertet Ingolfur Juliusson
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK