Steve Easterbrook, forstjóri hamborgarakeðjunnar McDonald's sagði á hluthafafundi félagsins að það kæmi aldrei til greina að hætta að nota trúðinn Ronald McDonald í markaðsetningu fyrirtækisins.
Ýmis samtök hafa gagnrýnt fyrirtækið fyrir að höfða sérstaklega til barna með notkun trúðsins, sér í lagi með vaxandi offitu barna í landinu. Easterbrook kom trúðinum til varnar í ræðu sinni. Gagnrýnin jókst enn frekar á síðasta ári þegar fyrirtækið ákvað að „poppa“ hann aðeins upp og klæddi hann í nýjustu tísku.
Á hluthafafundinum var einnig rætt um umræðuna í kringum laun fyrirtækisins en þeir hafa verið gagnrýndir fyrir að borga starfsfólki ekki vel og oft er McDonald's notað í umræðunni sem dæmi um stað sem fólk endar ef það stendur sig ekki í skóla eða starfi. Einn stór hluthafi tók til máls og benti á að á meðal fyrrum starfsmanna McDonald's væru leikkonan Sharon Stone og Jeff Bezos, forstjóri Amazon.com.
Sjá frétt Fox News.