Þorvaldur Ingvarsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Össurar, seldi í dag meirihluta hlutabréfa sinna í félaginu, eða fyrir rúmar sjötíu milljónir króna. Eftir söluna á hann alls 2.595 hluti í Össuri að andvirði rúmra 1,2 milljóna króna miðað við sama gengi.
Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Þorvaldur seldi alls 147.405 hluti á genginu 475 krónur á hlut.
Þorvaldur á kauprétt að 575.000 hlutum til viðbótar eða að andvirði 273 milljóna króna miðað við sama gengi.
Samkvæmt síðasta árshlutauppgjöri Össurar dróst hagnaður saman um 21% milli ára og nam 9 milljónum Bandaríkjadala, eða 1,2 milljarði íslenskra króna, eða 8% af sölu, samanborið við 9% af sölu á fyrsta ársfjórðungi 2014.
Sala nam alls 114 milljónum Bandaríkjadala, eða 15,2 milljörðum íslenskra króna, sem er aukning um 5% frá fyrra ári, þar af 4% innri vöxtur, hvort tveggja mælt í staðbundinni mynt.