Stjórnendur Whole Foods viðurkenndu í dag að þeir hefðu yfirverðlagt vörur í verslunum þeirra í New York. Þeir hyggjast bæta ráð sitt og lofuðu að viðskiptavinir myndu fá matinn gefins ef verslunin verður aftur uppvís að athæfinu.
John Mackey og Walter Robb, forstjórar Whole Foods, báðu neytendur afsökunar í dag í myndbandi sem var tekið upp í ávaxtadeildinni í einni af verslunum keðjunnar. Þeir viðurkenndu að sumir viðskiptavinir hefðu óvart verið látnir greiða of mikið fyrir niðursneidda ávexti, nýkreista ávaxtasaga og samlokur. „Við gerðum mistök. Við viljum gangast við því og segja hvað hvað við ætlum að gera í því,“ sagði Robb.
Líkt og mbl greindi frá á dögunum komust starfsmenn neytendastofu í New York að því að verslanakeðjan hefur kerfisbundið yfirverðlagt vörur sem fyrirtækið pakkar sjálft og selur. Þetta var sagt vera versta tilfelli rangrar verðmerkingar sem sést hefur.
Whole Foods hefur því lofað að verðlagning verði framvegis rétt í 100% tilvika. Annars fær viðskiptavinurinn vöruna ókeypis.
Í könnun neytendastofu voru alls áttatíu matvörutegundir skoðaðar en í 89 prósent tilvika hafði Whole Foods merkt vöruna ranglega og sagt hana vera þyngri en raun bar vitni. Fyrirtækið ofrukkaði þannig viðskiptavini allt frá 0,8 dollurum fyrir pekan-hnetu mjöl og upp í tæpa 15 dollara fyrir pakka af kókos-rækjum.
Frétt mbl.is: Gróf yfirverðlagning í Whole Foods