Kínverska fjárfestingarfélagið Geely Holding Group ætlar að leggja 45,5 milljónir dollara, sem jafngildir sex milljörðum íslenskra króna, til hlutafjáraukningar í Carbon Recycling International (CRI).
Ekki liggur fyrir hversu stór hlutdeild Geely Holding Group í félaginu verður eftir kaupin en samkvæmt upplýsingum frá CRI verður Geely ekki meirihlutaeigandi. Fulltrúar frá Geely verða einnig í stjórn CRI, segir í ítarlegri frétt Viðskiptablaðsins um málið.
CRI nýtir koltvísýringsútblástur og breytir honum í endurnýjanlegt metanól. Endurnýjanlegt metanól er hreint eldsneyti sem blanda má við bensín til að uppfylla kröfur um hlutdeild endurnýjanlegs eldsneytis í samgöngum. CRI fyrirhugar byggingu verksmiðja til framleiðslu endurnýjanlegs metanóls, bæði á Íslandi og í öðrum löndum Evrópu. Í dag fer framleiðsla félagsins fram á Reykjanesi.
Geely er meðal annars eigandi Volvo og London Taxi Company og framleiðir bíla undir eigin merkjum sem eru seldir víðs vegar um heim.
Geely Group og CRI ætla sér í samstarf á þróun á endurnýjanlegri metanólframleiðslu í Kína og að þróa farartæki sem ganga alfarið fyrir metanóli, í Kína, Íslandi og öðrum löndum.
Stjórnarformaður Geely, Lee Shufu, segir fyrirtækið stefna á að framleiða farartæki með engum útblæstri sem ganga fyrir metanóli
Þá segir að Geely Auti, sem er dótturfélag Geely Holding Group, hefur þegar náð töluverðum árangri með tæknina í Kína.