Bankamaðurinn Tom Hays var í dag dæmdur í fjórtán ára fangelsi fyrir að hafa handstýrt og hagrætt Libor-millibankavöxtunum svonefndu með óeðlilegum hætti. Þetta er fyrsti dómurinn sem fellur í þessu umfangsmikla máli sem vakið hefur mikla athygli. Réttarhöldin hafa staðið yfir í tvo mánuði.
Hayes var ákærður í átta ákæruliðum og sakfelldur í þeim öllum. Hann er talinn hafa hagrætt vöxtunum í starfi sínu sem miðlari hjá UBS og Citigroup á árunum 2006 til 2010.
Hays, sem er 35 ára gamall, neitaði sök og sagði stjórnendur bankanna hafa vitað af athæfinu Hann sagðist hafa staðið í þeirri trú að hann væri ekki að gera neitt rangt og aðspurður sagði hann að eini hvatinn hefði verið að græða eins mikla peninga og mögulegt væri fyrir bankann.
Í frétt BBC segir að Hayes þurfi að minnsta kosti að afplána sjö ár óskilorðsbundin áður en hann gæti átt kost á reynslulausn.
Þá er andrúmsloftinu í réttarsalnum einnig lýst í frétt BBC. Þar segir að eiginkona hans hafi skrifað dóminn niður eftir dómaranum sem las hann upp. Á sama tíma hélt Hayes um höfuð sitt þegar dómari sagði hann hafa látið freistast vegna þess að hann gat það. Til þess að vinna sig upp. Þá sagði hann gjörðirnar hafa verið óheiðarlegar og rangar.
Breskir bankar hafa nú þegar greitt hundruð milljóna dala til yfirvalda vegna sáttar sem var gerð vegna málsins. Rannsóknin á brotunum hefur staðið yfir í þrjú til fjögur ár.
Bresk yfirvöld segja að bankarnir hafi gefið villandi upplýsingar og reynt að fegra stöðu sína til að fá betri Libor-vexti.