6,4 milljarða halli á vöruskiptum

mbl.is/Sigurður Bogi

Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 51,9 milljarða króna og inn fyrir 54,5 milljarða króna fob (58,3 milljarða króna cif). Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 2,6 milljarða króna. Í júlí 2014 voru vöruskiptin hagstæð um 2,2 milljarða króna á gengi hvors árs.

Fyrstu sjö mánuði ársins 2015 voru fluttar út vörur fyrir tæpa 385,2 milljarða króna en inn fyrir rúma 391,5 milljarða króna fob (417,7 milljarða króna cif). Halli var því á vöruskiptum við útlönd sem nam 6,4 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti, en á sama tíma árið áður voru vöruskiptin óhagstæð um 7,6 milljarða á gengi hvors árs. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 1,2 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður, segir í frétt Hagstofu Íslands.

Verðmæti iðnaðarvara eykst um 24,8%

Fyrstu sjö mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruútflutnings 58,7 milljörðum eða 18,0% hærra, á gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 54,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 24,8% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á áli. Sjávarafurðir voru 41,6% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 19,3% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á fiskimjöli.

Fyrstu sjö mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruinnflutnings 57,4 milljörðum eða 17,2% hærra, á gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hrá- og rekstrarvöru og flugvéla.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK