Hrein erlend staða þjóðarbúsins gagnvart útlöndum á öðrum ársfjórðungi 2015 var neikvæð um 7.665 milljarða króna eða 365% af vergri landsframleiðslu. Fram kemur í fréttatilkynningu frá Seðlabankanum að staðan hafi aftur á móti jákvæð um 114 milljarða króna, eða 5,4% af vergri landsframleiðslu, að frátöldum innlánsstofnunum í slitameðferð.
„Slit innlánsstofnana í slitameðferð, miðað við núverandi stöðu og bókfært virði eigna, hafa neikvæð áhrif á hreinu erlendu stöðuna sem nemur 806 ma.kr. eða um 38% af vergri landsframleiðslu. Undirliggjandi erlend staða er því metin neikvæð um 691 ma.kr. eða 33% af áætlaðri vergri landsframleiðslu í lok annars ársfjórðungs 2015,“ segir ennfremur.