Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkissins hefur ákveðið að lækka lántökukostnað sjóðfélagalána um fjórðung. Lántökukostnaður verður nú 0,75% af lánsfjárhæð en hann var áður 1%.
Þetta kemur fram í frétt á vef LSR.
„Hagstæð kjör og sveigjanlegir skilmálar gera sjóðfélagalán hjá LSR að góðum kosti. Engin uppgreiðsluþóknun er tekin af sjóðfélagalánum,“ segir í fréttinni.