Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) hefur veitt Landsvirkjun 50 milljóna Bandaríkjadala langtímalán til að reisa jarðvarmavirkjun á norðausturlandi. Það jafngildir 6,2 milljarða króna láni á núverandi gengi.
Láninu, sem er til sextán ára, er ætlað að fjármagna fyrsta áfanga Þeistareykjavirkjunar í grennd við Húsavík. Í fyrsta áfanganum verða tvær 45 MW vélasamstæður settar upp. Aðstæður til nýtingar jarðhita á svæðinu eru mjög hagstæðar og er áætlað að hægt sé að framleiða allt að 200 MW af raforku ár hvert.
Þegar fram í sækir mun Þeistareykjavirkjun auka framleiðslu á raforku á landsvísu um fjögur prósentustig og mun hún fyrst og fremst anna orkuþörf kísilmálmverksmiðjunnar sem verið er að reisa við Húsavík. Þriðjungur raforkunnar er ætlaður Húsavíkur- og Akureyrarbæ og öðrum iðnaði á svæðinu.
„Verkefnið stuðlar að sjálfbærari kísilmálmframleiðslu fyrir heimsmarkað. Þetta er afar mikilvægur útflutningur fyrir Íslendinga og þar gegnir aðgangur að endurnýjanlegri orku lykilhlutverki,“ er haft eftir Henrik Normann, forstjóra Norræna fjárfestingarbankans, í tilkynningu,
Jarðvarmavirkjunin er hluti af stórri framkvæmdaráætlun á svæðinu, sem felur m.a. í sér nýju kísilmálmverksmiðjuna, háspennulínu og vegalagningu. Áætlað er að virkjunin verði tekin í notkun haustið 2017.
Fyrr í mánuðinum undirritaði einnig Evrópski fjárfestingabankinn (EIB) lánssamning að fjárhæð 125 milljónir evra við Landsvirkjun til fjármögnunar á Þeistareykjavirkjun.
Frétt mbl.is: Semja um fjármögnun Þeistareykjavirkjunar