Björn Ingi Hrafnsson og viðskiptafélagar hans hafa ekki enn greitt fyrir bókabúð Máls og menningar við Laugaveg þrátt fyrir að um þrír mánuðir séu liðnir síðan samkomulag náðist um söluna. Þetta kemur fram í Fréttatímanum. Greint var frá því í sama miðli í maí síðastliðnum að Björn Ingi hygðist kaupa rekstur verslunarinnar en svo virðist sem kaupin séu ekki gengin í gegn.
Í samtali við Fréttatímann segist Björn Ingi vonast til þess að kaupsamningurinn gangi eftir í næstu viku.