Nýherji hagnaðist um 111 milljónir króna á fyrri árshelmingi 2016 en tekjur fyrirtækisins jukust um 7,2% frá fyrra ári og námu 7.126 milljónum króna. Framlegðin nam 1.816 milljónum króna og EBITDA 439 milljónum króna.
Eiginfjárhlutfall fyrirtækisins var 30,8% í lok annars ársfjórðungs en var 29,3% í lok síðasta ársfjórðungs.
„Afkoma Nýherjasamstæðunnar batnaði á öðrum ársfjórðungi miðað við fyrsta fjórðung þessa árs, en fyrri helmingur ársins markast af kostnaðarhækkunum vegna kjarasamninga. Heildarhagnaður samstæðunnar er 73 mkr á öðrum ársfjórðungi og 111 mkr fyrstu 6 mánuði ársins, sem er sambærilegt við fyrri árshelming 2015,“ er haft eftir Finni Oddssyni, forstjóra Nýherja, í tilkynningu.
„Rekstur samstæðunnar gekk almennt ágætlega, sérstaklega hefur verið góður gangur í hugbúnaðartengdri starfsemi, bæði hjá Nýherja og dótturfélögum. Tekjur Tempo jukust um tæplega 40% (í USD) og viðskiptavinum fjölgar áfram hratt. Til að styðja við þessa þróun höfum við lagt aukna áherslu á erlenda starfsemi Tempo með fjölgun starfsfólks í Montréal og opnun starfsstöðvar í San Francisco. Hjá TM Software hækkuðu tekjur um fjórðung, en mjög góð eftirspurn er eftir lausnum á öllum sérsviðum félagsins. Tekjur Applicon í Svíþjóð hafa að sama skapi aukist, afkoma er góð og unnið að stórum og spennandi verkefnum, sérstaklega á sviði bankalausna.
Góður vöxtur hefur verið í sölu hugbúnaðarlausna hjá Nýherja, móðurfélagi, en aukin áhersla á þann þátt starfsemi okkar skilað því m.a. að Nýherji var valinn samstarfsaðili ársins af Microsoft í fyrsta skipti. Sala á tölvum og tengdum búnaði gekk vel, sérstaklega í hljóð- og myndlausnum og nýjum hýsingarlausnum, sem Nýherji býður í samstarfi við Verne, hefur verið afar vel tekið.
Yfir það heila erum við nokkuð sátt við niðurstöðuna eftir ögrandi fyrsta fjórðung ársins. Verkefnastaða er góð, afar áhugaverð tækifæri í starfsemi dótturfélaga erlendis og horfur í rekstri samstæðunnar því ágætar. Kostnaðarhækkanir vegna kjarasamninga í upphafi árs verða þó áfram eitt stærsta viðfangsefnið á móðurfélagi Nýherja og verður áfram horft til hagræðingar eins og þörf krefur.“