Hagnaður Eimskipa á öðrum ársfjórðungi ársins nam 8,8 milljónum evra, eða jafnvirði 1.161 milljónar íslenskra króna, samanborið við 5,5 milljónir evra fyrir ári. Jókst hagnaðurinn um 58,7%.
Þá námu rekstrartekjur fyrirtækisins 126,1 milljón evra og drógust þær saman um 0,4% milli ára.
Flutt magn í áætlunarsiglingum jókst um 9,1% og tekjur hækkuðu um 4,9 milljónir evra. Flutningsmagn í flutningsmiðlun dróst saman um 1,2% og tekjur lækkuðu um 5,4 milljónir evra vegna áhrifa af lækkandi verðum í alþjóðlegri flutningsmiðlun. EBITDA nam 16,2 milljónum evra samanborið við 13,3 milljónir evra og jókst um 21,6%. Eiginfjárhlutfall var 62,0% og nettóskuldir námu 31,4 milljónum evra í lok júní.
Þetta er besti árangur sem náðst hefur á öðrum ársfjórðungi í rekstri félagsins frá árinu 2009 hvað varðar EBITDA, EBIT, hagnað og handbært fé frá rekstri.
Í tilkynningu frá Eimskip kemur fram að afkomuspá ársins 2016 sé óbreytt, eða EBITDA á bilinu 49 til 53 milljónir evra.
Að sögn Gylfa Sigfússonar, forstjóra Eimskipa, var góður vöxtur í flutningum tengdum Íslandi og Noregi, en samdráttur var í Færeyjum. Tekjur af flutningsmiðlun drógust saman um 5,4 milljónir evra vegna áhrifa af lækkandi verðum í alþjóðlegri flutningsmiðlun. Magn í flutningsmiðlun dróst saman um 1,2% samanborið við sama tímabil í fyrra. Stafar breytingin einkum af samdrætti í frystiflutningsmiðlun frá Kína, en aðrir markaðir hafa verið í vexti.
Þá dróst rekstarkostnaður að meðtöldum launakostnaði saman um 3% vegna breytinga á siglingakerfi, hagræðingarverkefna, aukins kostnaðaraðhalds og lækkandi verðs í alþjóðlegri flutningsmiðlun. Að sögn Gylfa er það góður árangur í ljósi mikilla kostnaðarhækkana vegna kjarasamninga á Íslandi.
„Eimskip og grænlenska skipafélagið Royal Arctic Line undirrituðu í maí viljayfirlýsingu um að tengja Grænland við alþjóðlegt siglingakerfi Eimskips. Félögin hafa frá þeim tíma unnið að því að móta og meta mögulegt samstarf um fjárfestingu í gámaskipum og samtengingu siglingakerfa. Verkefnið gengur samkvæmt áætlun og gerum við ráð fyrir að ákvörðun liggi fyrir fljótlega,“ er haft eftir Gylfa í tilkynningu.
„Frá því í maí hefur undirbúningur fjárfestingarverkefna gengið vel og Eimskip stefnir að því að ljúka á þriðja og fjórða ársfjórðungi kaupum á nokkrum fyrirtækjum í Evrópu sem falla undir okkar kjarnastarfsemi. Félagið er nú í samstarfi við alþjóðleg lögfræði- og endurskoðunarfyrirtæki til að ljúka áreiðanleikakönnunum.
Eins og áður hefur komið fram er það áfram markmið okkar að vaxa, bæði með innri vexti og með kaupum á fyrirtækjum sem falla að starfsemi félagsins og auka virði þess. Við munum halda áfram á sömu braut í að vinna að fjárfestingum í fyrirtækjum og skipum. Við munum ekki auka hlutafé til að ljúka mögulegum fjárfestingum en munum hins vegar nota handbært fé og auka lántökur til að koma skuldsetningu fyrirtækisins í eðlilegra horf, þó þannig að efnahagsreikningur félagsins verði áfram sterkur.“