Fimm flugfélög munu í vetur halda uppi flugsamgöngum milli Íslands og flugvallanna í London, en aldrei áður hefur samkeppni á einni flugleið frá Íslandi verið jafnmikil. Til samanburðar má nefna að frá Óslóarflugvelli og Arlanda í Stokkhólmi bjóða þrjú flugfélög upp á áætlunarferðir til London en í Kaupmannahöfn eru félögin í Lundúnarfluginu fimm líkt og hér á landi.
Þetta kemur fram á vefnum Túristi.is. Þar kemur fram að þótt fleiri flugfélög fari frá Íslandi séu ferðirnar fleiri frá hinum flugvöllunum. Eru þær um 20 á dag á meðan ferðirnar verða flestar 12 á dag frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar í vetur.
Þá segir að vöxturinn hafi verið mjög hraður, því í febrúar 2012, þegar aðeins Iceland Express og Icelandair flugu á þessari leið, voru ferðirnar að jafnaði 2,7 á dag en fimm árum síðar er meðaltalið 9,6. Flestar eru ferðirnar á fimmtudögum.
Þau flugfélög sem munu fljúga til borgarinnar eru Icelandair, WOW air, easyJet, British Airways og Norwegian. Flogið er til Heathrow, Gatwick, Luton og Stansted. Í fyrra flugu nærri 313 þúsund farþegar á milli Íslands og Gatwick en um 240 þúsund til og frá Heathrow.
Sjá frétt af vefnum Túristi.is.