Fjárfestingasjóðurinn Horn III hefur keypt 80% hlut í Basko ehf., en félagið fer með eignarhald á Rekstrarfélagi Tíu Ellefu ehf., Ísland-Verslun hf. og Imtex ehf. Rekstrarfélag Tíu Ellefu ehf. rekur samtals 35 þægindavöruverslanir undir merkjum 10-11 og Háskólabúðarinnar og er einnig móðurfélag Drangaskers ehf. sem rekur fjögur kaffihús undir merkjum Dunkin Donuts. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Horns.
Horn III er í rekstri Landsbréfa hf., sem er sjóðsstýringafyrirtæki í eigu Landsbankans. Sjóðurinn var fjármagnaður á fyrsta ársfjórðungi þessa árs og settu rúmlega 30 hluthafar um 12 milljarða í sjóðinn. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Horns samanstendur hluthafahópurinn af lífeyrissjóðum, fjármálafyrirtækjum og fagfjárfestum. Er sjóðurinn hugsaður til að fjárfesta í óskráðum fjárfestingum í íslensku atvinnulífi.
Í tilkynningu vegna kaupanna kemur fram að kaupverð sé trúnaðarmál og að Árni Pétur Jónsson muni áfram vera forstjóri Basko. Hann verður eftir kaupin næststærsti hluthafi félagsins, en hann hafði áður verið eigandi alls félagsins.