Erfðafræðifyrirtækið Earlham institute (EI) mun setja upp tölvuþjóna í gagnaveri Verne Global að Ásbrú, en þetta er annað fyrirtækið á stuttum tíma sem semur við Verne. EI ætlar að nýta aðstöðuna undir öfluga gagnareikninga sem tengjast rannsóknum þess.
Fram kemur í tilkynningu að EI muni með því að færa gagnareikninga sína til Íslands spara allt að 70% í rafmagnskostnað, meðal annars vegna þess að ekki þarf að kæla gagnaverið með öðrum hætti en íslensku veðri.
Í síðustu viku var tilkynnt um að Volkswagen-bílaframleiðandinn væri einnig á leið til Verne með hluta af gagnaþjónum sínum.