Brexit til meðferðar í Hæstarétti í dag

Forsætisráðherra Bretlands hefur sagst ætla að hefja viðræður um útgöngu …
Forsætisráðherra Bretlands hefur sagst ætla að hefja viðræður um útgöngu þjóðarinnar úr ESB í mars á næsta ári. AFP

Hæstiréttur Bretlands mun í dag taka til meðferðar hvort bresk stjórnvöld þurfi samþykki þingsins áður en úr­sagn­ar­ferli lands­ins úr Evr­ópu­sam­band­inu verður form­lega hafið á næsta ári.

Rúmur mánuður er síðan breskur dómstóll komst að þeirri niðurstöðu og var það mikið áfall fyrir bresku ríkisstjórnina, sérstaklega Theresu May, forsætisráðherra Bretlands. Hún hyggst hefja úrsagnarferlið í mars á næsta ári og telur rík­is­stjórn sína hafa kon­ung­legt vald til þess að taka ákvörðun um að hefja ferlið, en um er að ræða hluta af fram­kvæmda­vald­inu. 

Málinu var áfrýjað til æðra dómsstigs og hefst sú meðferð í dag og stendur hún yfir í fjóra daga. Þá er gert ráð fyrir því að greint verði frá niðurstöðu Hæstaréttar í janúar.

Bretar kusu um framtíð þjóðarinnar í Evrópusambandinu í sumar. 51,9% vildu ganga úr sambandinu en 48,1% vildu vera þar áfram.

Málsmeðferðin hefst klukkan 11 og verður hún í beinni útsendingu á BBC.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK