Eigendur tölvuleikjaframleiðandans CCP skoða nú möguleikann á því að selja fyrirtækið. Þetta kemur fram á vef Bloomberg.
Þar kemur fram að fyrirtækið gæti verið metið á allt að 955 milljónir Bandaríkjadala eða rúmlega 105 milljarða íslenskra króna.
CCP er í meirihluta eigu Novator, sem er fjárfestingafélag Björólfs Thors Björgólfssonar, en fjárfestingafélögin og New Enterprise og General Catalyst Partners eiga einnig stóra hluti. Samkvæmt frétt Bloomberg skoða fyrirtækin nú hvort það eigi að reyna að selja fyrirtækið.
CCP var stofnað í Reykjavík árið 1997 og er tölvuleikurinn Eve Online þekktasta vara fyrirtækisins.
Árið 2015 var metár í hagnaði hjá fyrirtækinu og nam hagnaður ársins 2,7 milljörðum króna samanborið við 8,7 milljarða tap árið áður. Um er að ræða rúmlega 11 milljarða umskipti í rekstri fyrirtækisins.